Tennisskóli Íslands
1.september.2011 - 31.maí 2012
s.820-0825 tennis@tennis.is
Um Tennisskóla Íslands
Tennisskóli Íslands var stofnaður á árinu 1995 með það markmið að nýta æfingar betur og sameina krakka af svipuðu getustigi í tennis. Þessar æfingar eru á vegum eftirfarandi tennisfélaga á höfuðborgarsvæðinu: Fjölnis, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Víkings og Þróttar. Kennarinn er Raj K. Bonifacius, margfaldur Íslandsmeistari í tennis með hæstu tennisþjálfararéttindi frá atvinnusamtökum tennisþjálfara, Professional Tennis Registry.
Æfingar
Æfingarnar eru haldnar í Tennishöllinni í Kópavogi á þremur innanhúss tennisvöllum. Þar höfum við afnot af búningsaðstöðu og sturtum. Tennisskólinn skaffar bolta en það sem þarf að eiga eru innanhúss íþróttaskór og leikfimisföt. Vetraræfingar eru opnar fyrir alla. Æfingatímar eru frá kl. 14.30 til 18.30 á Þriðjudögum, Miðvikudögum og Föstudögum.

Kostnaður
Æfingargjöld eru 75.000 kr. fyrir að æfa tvær klukkustundir í viku og 90.000 kr. fyrir þrjár klukkustundir í viku. Systkina afsláttur er 10%. Æfingatímabilið er frá 1.september.2011 til 31.maí.2012.
Hjá Tennisskóla Íslands getur þú nýtt þér þá styrki sem bæjar- og sveitarfélögin bjóða upp á:
Garðabær - 25.000 kr. á ári
Hafnarfjörður - 24.000 kr. á ári (2.000 kr. / mánaði)
Kópavogur - 15.000 kr. / ári
Mosfellsbær - 15.000 kr. / ári
Reykjavík - 25.000 kr. / ári
Seltjarnarnes - 20.000 kr. / ári
Vinsamlega fylla ut umsókn hér að neðan.
