Miðnæturmót í Tennis
21. jún. 2009
Skráið ykkur sem fyrst – bara 16 manns komast inn í þessari keppni. Mótsgjald 3.000 kr. Skráning fer fram í síma 820 - 0825 eða fyllið út formið hérna..Víkingsvellir - Miðvikudaginn, 1.júlí, kl. 19.00
Skráið ykkur á árlegt Miðnæturmót í tennis! Mótið hentar öllum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dregið verður saman í stutta tvíliðaleiki, þannig að með- og mótspilarar eru sjaldan þeir sömu. Í lokin eru allar unnar lotur taldar saman.
