Raj sigraði Birki í úrslitaleik 4.Stórmóts TSÍ
26. okt. 2009
Raj Bonifacius (k Tour 6.1) sigraði Birki Gunnarsson (k Pro Open) úr Tennisfélagi Kópavogs í úrslitum 4. Stórmóti TSÍ sem lauk á mánudaginn. Raj sigraði Birki 6:2 og 6:3 í hörkuleik. Kjartan Pálsson (k Pro Team) varð í þriðja sæti en Sandra Dís Kristjánsdóttir (k Tour) þurfti að gefa leikinn um þriðja sætið vegna meiðsla í baki. Mjög góð þáttaka var á mótinu eða alls 112 tennisspilarar sem er besta þáttakan í tennismóti á árinu.
1
