Eirdís vinnur önnur mótið í röð, Raj fjórði!
01. feb. 2010
Fyrsta stórmóti Tennissambandi Íslands lauk í gær og var þetta bara algjör "Wilson" mótið einu sinni enn. Nýkrýndir bikarmeistarar Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir (k Tour) og Raj K. Bonifacius (k 6.1. Tour) sigruðu í karla- og kvennaflokki. Eirdís sigraði Karítas Gunnarsdóttir (ncode 5.0) 6-2 og 6-1. Raj sigraði Birki Gunnarsson (kPro Open) 6-3 og 6-1. Í þriðja sæti lenti Rafn Kumar Bonifacius (k Tour 95) með því að sigra Jónas Pál Björnsson (nSurge 95) í hörkuleik 4-6, 6-2, 10-5. Í tvíliðaleik karla sigruðu Hinrik Helgason og Rafn Kumar Bonifacius (k Tour 95) feðgana Hjört Scheving (nPro 95) og Óskar Örn Scheving (nPro 95) 6-2 í úrslitum. Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Anna Soffía Grönhölm (k Tour 26) og Hjördís Rósa Guðmundsdóttir (k Tour 26) þær Drífu Sóley Heimisdóttir og Hebu Sólveig Heimisdóttir (Federer 26) 6-5 í úrslitaleiknum. Til hamingju!!
