Eirdís og Raj Bikarmeistarar í 2009
01. jan. 2010
Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir (Wilson nTour) og Raj K. Bonifacius (Wilson kTour 6.1) fögnuðu sigri í karla- og kvennaflokki á Bikarmóti Tennissambands Íslands sem lauk með úrslitaleikjum í einliðaleik í tennishöllinni í Kópavogi í gær. Raj hafði betur gegn Andra Jónssyni í spennandi úrslitaleik hjá körlunum, 7:6 og 7:6, og þegar staðan var 5:5 í fyrsta setti í viðureign Eirdísar og Söndru Dísar Kristjánsdóttur (Wilson nTour) í kvennaflokki gaf Sandra leikinn vegna meiðsla.
