4.Stórmót TSÍ - Mótskrár hér

22. okt. 2010

4.Stórmót TSÍ hefst á laugardaginn, 23.október og verður keppt í tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki. 

Mótskrá má sjá hér fyrir neðan:
ITN Styrkleikaflokkur – Einliðaleikur
ITN Styrkleikaflokkur – Tvíliðaleikur

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:00 á mánudaginn.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja. Mótstjóri er Raj Bonifacius sími 820-0825.

Míni Tennis flokkurinn verður á mánudaginn, 25.október og hefst kl.14.30 fyrir þeim sem eru 10 ára (fædd 2000) og yngri.