Tennis Æfingar hefjast aftur 8.janúar.2010
03. jan. 2010
Gleðilegt ár! Tennisæfingar hefjast aftur á föstudaginn, 8.janúar.2010.
Happy New Year! Tennis classes will resume on Friday, January 8, 2010.
Eirdís og Raj Bikarmeistarar í 2009
01. jan. 2010
Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir (Wilson nTour) og Raj K. Bonifacius (Wilson kTour 6.1) fögnuðu sigri í karla- og kvennaflokki á Bikarmóti Tennissambands Íslands sem lauk með úrslitaleikjum í einliðaleik í tennishöllinni í Kópavogi í gær. Raj hafði betur gegn Andra Jónssyni í spennandi úrslitaleik hjá körlunum, 7:6 og 7:6, og þegar staðan var 5:5 í fyrsta setti í viðureign Eirdísar og Söndru Dísar Kristjánsdóttur (Wilson nTour) í kvennaflokki gaf Sandra leikinn vegna meiðsla.
Raj sigraði Andra í úrslitaleik 5.Stórmótið TSÍ
23. nóv. 2009
Raj Bonifacius (kTour 6.1) sigraði Andra Jónsson í úrslitum ITN styrkleikaflokks einliðaleik. Raj sigraði Andra 6-3 og 6-1. Birkir Gunnarsson (KPro Open) varð í þriðja sæti með því að sigra Rúrik Vatnarsson (nSurge 6.1) 6-2 og 6-0.
Raj sigraði Birki í úrslitaleik 4.Stórmóts TSÍ
26. okt. 2009
Raj Bonifacius (k Tour 6.1) sigraði Birki Gunnarsson (k Pro Open) úr Tennisfélagi Kópavogs í úrslitum 4. Stórmóti TSÍ sem lauk á mánudaginn. Raj sigraði Birki 6:2 og 6:3 í hörkuleik. Kjartan Pálsson (k Pro Team) varð í þriðja sæti en Sandra Dís Kristjánsdóttir (k Tour) þurfti að gefa leikinn um þriðja sætið vegna meiðsla í baki. Mjög góð þáttaka var á mótinu eða alls 112 tennisspilarar sem er besta þáttakan í tennismóti á árinu.
Birkir & Raj keppir í úrslitaleik 4.Stórmót TSÍ
26. okt. 2009
Team Wilson spilarar Birkir Gunnarsson (nPro Open) og Raj Bonifacius (k6.1 Tour) keppir í úrslitaleik í dag, mánudaginn, 26.okt., kl.16.30 í tennishöllin í Kópavogur. Þetta verður "the Battle of the Ages" þar sem Birkir, 17 ára, er yngstasta meðlimi í karlalandslið og Raj sá elsti, rumlega 30.... Í 3.sæti leikurinn keppir team Wilson meðlimur Sandra Dís Kristjánsdóttir (kTour) og Kjartan Pálsson (nPro Team) líka kl.16.30. 4.Stórmót TSÍ er stærsta tennismót ársins - yfir 115 keppendur í einliðaleikur.
Upplýsingar (smella á)
Mótsskrá
Verðlaun
Stórmót Tennissamband 24.-26.okt.2009
20. okt. 2009
Næstu Stórmót Tennissambandsins hefst núna á Laugardaginn, 24.október. Keppni um helgina verður í einliða. Vinsamlega fara inná mótskrá til að athuga hvenær þið eru að keppa - mótskrá hér . Míni tennismótið verður á mánudaginn, 26.okt. og hefst kl.14.30. Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ: Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja. Mótstjórann er Raj K. Bonifacius síma 820-0825.
Þátttökgjald:
Einliðaleikur- 1.000 kr./míni tennis; 2.000 kr./fædd f. 1990; 2.500 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./fædd f. 1990; 2.000 kr./aðrir
Vegna tímaskorts, verður tvíliðaleiksmótið auglýst aftur inná siðunni www.tennissamband.is
Vetraræfingar Tennisskólans hefjast 1.september
23. ágú. 2009
Upplýsingar um Tennisskólans í vetur er hægt að lesa HÉR
Endurbætt heimasíða hjá Tennis.is
13. júl. 2008
Nú hefur Tennis.is fengið andlitslyftingu, glænýtt útlit á heimasíðu okkar hefur nú litið dagsins ljós. Það er Vefhetjan sem á heiðurinn af nýja útlitinu. Með tilkomu nýju síðunnar þá vonumst við til að setja aukakraft í síðuna og reyna að bæta við efni hér höfðar til allra tennisáhugamanna á íslandi. Hér til hægri er hægt að skrá sig á póstlista okkar, hvetjum við alla til að gera það, það er ætlun okkar að senda út öðru hvoru fréttabréf með helstu fréttum, mótum og öðru úr tennisheiminum. Ef þú lumar á góðri hugmynd eða vilt koma einhverju áleiðis í fréttabréfið þá er þér velkomið að senda á okkur línu, getur gert það hér.
Tennisskólinn 2007
24. jún. 2008

